Laugavegur 26

Verknúmer : SN060620

71. fundur 2006
Laugavegur 26, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 26 við Laugaveg. Kynning stóð yfir frá 6. október 2006 til og með 3. nóvember 2006. Athugasemdabréf barst frá Kristni Gunnarssyni, dags. 2. nóvember 2006. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. nóvember 2006.


Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.

139. fundur 2006
Laugavegur 26, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 26 við Laugaveg. Kynning stóð yfir frá 06.10.06 til og með 03.11.06. Eftirtaldur aðili sendi inn athugasemdabréf: Kristinn Gunnarsson, dags. 02.11.06.
Kynna formanni skipulagsráðs.

133. fundur 2006
Laugavegur 26, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 26 við Laugaveg.
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 22, 26, 28, 25, 27 og 29 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.