Vesturlandsvegur, Reynisvatn

Verknúmer : SN060573

64. fundur 2006
Vesturlandsvegur, Reynisvatn, landnr. 113414 (fsp) sumarhús
Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa vegna fyrri afgreiðslu erindisins dags. 1. september 2006. Einnig er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. júní 2006, vegna fyrirspurnar um leyfi til að byggja sumarhús á landi Reynisvatns, landnúmer 113414. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. ágúst 2006 fylgir erindinu.
Ráðið gerir ekki athugasemd við að fyrirspyrjandi sæki um byggingarleyfi í samræmi við niðurstöðu í greinargerð skipulagsfulltrúa.