Fossvogur, einbýlishús

Verknúmer : SN060560

66. fundur 2006
Fossvogur, einbýlishús, breyting á skilmálum
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 15. september 2006, vegna samþykkt borgarráðs 14. þ.m. á afgreiðslu skipulagsráðs 6. s.m., varðandi auglýsingu á skilmálum deiliskipulags Fossvogshverfis.


64. fundur 2006
Fossvogur, einbýlishús, breyting á skilmálum
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á skilmálum deiliskipulags Fossvogshverfis vegna kjallara einbýlishúsa í Fossvogi dags. 28. ágúst 2006.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


130. fundur 2006
Fossvogur, einbýlishús, breyting á skilmálum
Lögð fram drög skipulagsfulltrúa að tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna kjallara einbýlishúsa í Fossvogi dags. 28. ágúst 2006.
Kynna formanni skipulagsráðs.