Bauganes 3A

Verknúmer : SN060538

67. fundur 2006
Bauganes 3A, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Arkþing, dags. 17. ágúst 2006, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 3A við Bauganes. Einnig lagt fram skuggavarp, ódagsett. Kynning stóð yfir frá 30. ágúst 2006 til og með 27. september 2006. Athugasemdabréf bárust frá Pétri Böðvarssyni, dags. 18. september 2006 og Björk Einarsdóttur, dags. 24. september 2006. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2006.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

134. fundur 2006
Bauganes 3A, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Arkþing, dags. 17.08.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 3A við Bauganes. Einnig lagt fram skuggavarp, ódagsett. Kynning stóð yfir frá 30.08.06 til og með 27.09.06. Athugasemdabréf bárust frá Pétri Böðvarssyni, dags. 18.09.06 og Björk Einarsdóttur, dags. 24.09.06. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. september 2006.
Vísað til skipulagsráðs.

129. fundur 2006
Bauganes 3A, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Arkþing, dags. 17.08.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 3A við Bauganes. Einnig lagt fram skuggavarp, ódagsett.
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Bauganesi 1, 1a, 3 og 5 ásamt Einarsnesi 40, 42 og 44a.