Vesturhólar 11

Verknúmer : SN060503

64. fundur 2006
Vesturhólar 11, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Einars Ingimarssonar arkitekts, dags. 26. júlí 2006, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 11 við Vesturhóla. Kynning stóð yfir frá 2. ágúst til og með 30. ágúst 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

125. fundur 2006
Vesturhólar 11, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Einars Ingimarssonar arkitekts, dags. 26. júlí 2006, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 11 við Vesturhóla.
Samþykkt að grenndarkynna fyrirliggjandi tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Vesturhólum 1, 3, 5, 7, 9, 13 og 15.