Nýlendugata 5a

Verknúmer : SN060498

71. fundur 2006
Nýlendugata 5a, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags og byggingarmála frá 2. nóvember 2006 vegna kæru á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 24. nóvember 2004 á tillögu að breyttu deiliskipulagi Norðurstígsreits, er fól í sér færslu á byggingarreit lóðarinnar að Nýlendugötu 5a, Reykjavík. Úrskurðarorð: Kröfu kærenda er hafnað.


60. fundur 2006
Nýlendugata 5a, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu, dags. 24. júlí 2006, vegna kæru á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar frá 24. nóvember 2005 á breytingu á deiliskipulagi Norðurstígsreits vegna Nýlendugötu 5a í Reykjavík.
Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt.