Gvendargeisli 104

Verknúmer : SN060476

90. fundur 2007
Gvendargeisli 104, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 12. apríl 2007 vegna kæru á synjun skipulagsráðs frá 7. júní 2006, á beiðni um breytt deiliskipulag við Gvendargeisla 104. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu á synjun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 7. júní 2006, er borgarráð staðfesti hinn 8. sama mánaðar, um breytingu á deiliskipulagi varðandi lóðina að Gvendargeisla 104 í Reykjavík.


65. fundur 2006
Gvendargeisli 104, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags.14. september 2006, vegna kæru á synjun skipulagsráðs frá 7. júní 2006, á beiðni um breytt deiliskipulag við Gvendargeisla 104.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

59. fundur 2006
Gvendargeisli 104, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 6. júlí 2006, ásamt kæru, dags. 14. júní 2006, þar sem kærð er synjun skipulagsráðs frá 7. júní 2006 á beiðni um breytt deiliskipulag við Gvendargeisla 104.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.