Skipholt 50A

Verknúmer : SN060447

66. fundur 2006
Skipholt 50A, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 20. september 2006, vegna kæru á samþykkt byggingarfulltrúa á umsókn um að byggja eina hæð úr steinsteypu ofan á bakbyggingu á lóðinni nr. 50A við Skipholt.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

58. fundur 2006
Skipholt 50A, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 26. júní 2006, ásamt kæru, dags. 22. maí 2006, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa um að heimila að byggja eina hæð úr steinsteypu ofan á bakbyggingu á lóðinni nr. 50A við Skipholt.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.