Hverfisgata

Verknúmer : SN060433

60. fundur 2006
Hverfisgata, við Arnarhól, breyting á deiliskipulagi v. stæða leigubíla
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 13. júlí 2006 á bókun skipulagsráðs frá 28. f.m. varðandi auglýsingu á breyttu deiliskipulagi á Hverfisgötu við Arnarhól vegna stæða fyrir leigubíla.


57. fundur 2006
Hverfisgata, við Arnarhól, breyting á deiliskipulagi v. stæða leigubíla
Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 19. júní 2006 að breytingu á deiliskipulagi við Arnarhól. Einnig lagt fram bréf aðstoðarsviðsstjóra Framkvæmdasviðs, dags. 1. maí 2006, varðandi aðstöðu leigubíla í miðborginni.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs
Jafnframt er samþykkt að kynna tillöguna sérstaklega fyrir umhverfissviði samhliða auglýsingaferli.


121. fundur 2006
Hverfisgata, við Arnarhól, breyting á deiliskipulagi v. stæða leigubíla
Lagt fram bréf aðstoðarsviðsstjóra Framkvæmdasviðs, dags. 1. maí 2006, varðandi aðstöðu leigubíla í miðborginni ásamt uppdrætti Vinnustofunnar Þverá, dags. 19. júní 2006.
Vísað til skipulagsráðs.