Bjarmaland 18-24

Verknúmer : SN060411

58. fundur 2006
Bjarmaland 18-24, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Glámu-Kím, dags. 8. júní 2006 ásamt uppdrætti, dags. 8. maí 2006, um breytingu á skipulagsskilmálum fyrir Bjarmaland 18-24. Einnig lagt fram samþykki lóðarhafa. Breytingin felst í að hækka nýtingarhlutfall vegna kjallara undir húsum, þar sem það á við.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin er smávægileg og varðar einungis hagsmuni lóðarhafa.

122. fundur 2006
Bjarmaland 18-24, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Glámu-Kím, dags. 8.06.06 ásamt uppdrætti, dags. 8.05.06, um breytingu á skipulagsskilmálum fyrir Bjarmaland 18-24. Einnig lagt fram samþykki lóðarhafa.
Vísað til skipulagsráðs.

120. fundur 2006
Bjarmaland 18-24, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Glámu-Kím, dags. 8.06.06 ásamt uppdrætti, dags. 8.05.06, um breytingu á skipulagsskilmálum fyrir Bjarmaland 24 á sameiginlegri lóð Bjarmalands 18-24.
Frestað. Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.