Jónsgeisli

Verknúmer : SN060397

58. fundur 2006
Jónsgeisli, (fsp) bílastæðafyrirkomulag
Lögð fram fyrirspurn Róberts Reynissonar f.h. íbúa við Jónsgeisla 21-35, dags. 8. júní 2006, varðandi fyrirkomulag bílastæða við Jónsgeisla. Einnig lagður fram undirskriftarlisti 8 íbúa í götunni. Lögð fram umsögn Framkvæmdasviðs, dags. 29. júní 2006.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við framkvæmdir innan lóðar sem miða að því að hægt sé að koma fyrir fleiri bifreiðum. Ekki er þó talin ástæða til þess að breyta deiliskipulagi á þann hátt að fjölga samþykktum bílastæðum innan lóðar á kostnað götubílastæða. Ráðið felur Framkvæmdasviði að haga frágangi gatna í samráði við þá lóðarhafa sem óska eftir því að gert verði ráð fyrir breiðari aðkomu að lóð sinni en gert er ráð fyrir í skipulagi.

123. fundur 2006
Jónsgeisli, (fsp) bílastæðafyrirkomulag
Lagt fram bréf Róberts Reynissonar f.h. íbúa við Jónsgeisla 21-35, dags. 8.06.06, varðandi fyrirkomulag bílastæða við Jónsgeisla. Einnig lagður fram undirskriftarlisti 8 íbúa í götunni. Lögð fram umsögn Framkvæmdasviðs, dags. 29.06.06.
Kynna formanni skipulagsráðs.

121. fundur 2006
Jónsgeisli, (fsp) bílastæðafyrirkomulag
Lagt fram bréf Róberts Reynissonar f.h. íbúa við Jónsgeisla 21-35, dags. 8.06.06, varðandi fyrirkomulag bílastæða við Jónsgeisla. Einnig lagður fram undirskriftarlisti 8 íbúa í götunni.
Vísað til umsagnar Framkvæmdasviðs vegna ósk um fjölgunar bílastæða á lóð og frágangi þeirra.

120. fundur 2006
Jónsgeisli, (fsp) bílastæðafyrirkomulag
Lagt fram bréf Róberts Reynissonar f.h. íbúa við Jónsgeisla 21-35, dags. 8.06.06, varðandi fyrirkomulag bílastæða við Jónsgeisla. Einnig lagður fram undirskriftarlisti 8 íbúa í götunni.
Vísað til umsagnar hverfisarkitekts.