Þórsgata 13

Verknúmer : SN060382

65. fundur 2006
Þórsgata 13, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga arkitekta Hjördís og Dennis ehf., dags. 8. ágúst 2006 vegna breytingar á deiliskipulagi á lóðinni nr. 13 við Þórsgötu. Kynning stóð yfir frá 18. ágúst til og með 15. september 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

127. fundur 2006
Þórsgata 13, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga arkitekta Hjördís og Dennis ehf, dags. 8. ágúst 2006 vegna breytingar á deiliskipulagi á lóðinni nr. 13 við Þórsgötu.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Þórsgötu 10, 12, 15, 15a, Baldursgötu 37 ásamt Lokastíg 10, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.

120. fundur 2006
Þórsgata 13, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Teiknistofunnar ehf., dags. 22.05.06, um breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 13 við Þórsgötu. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags, 1.06.06. Einnig lagt fram skuggavarp, dags. 09.06.06.
Ekki er gerð athugasemd við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, sem grenndarkynnt verður þegar hún berst

119. fundur 2006
Þórsgata 13, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Teiknistofunnar ehf., dags. 22.05.06, um breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 13 við Þórsgötu.
Vísað til umsagnar hverfisarkitekts.