Stakkhamrar 25

Verknúmer : SN060370

58. fundur 2006
Stakkhamrar 25, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Lárusar Kr. Ragnarssonar, dags. 23. apríl 2006, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 25 við Stakkhamra. Kynning stóð yfir frá 31. maí 2006 til og með 28. júní 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til a-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

118. fundur 2006
Stakkhamrar 25, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Lárusar Kr. Ragnarssonar, dags. 23.04.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 25 við Stakkhamra.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Stakkhömrum 14, 16, 18, 21 og 23.