Kringlumýrarbraut

Verknúmer : SN060262

53. fundur 2006
Kringlumýrarbraut, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. apríl 2006 á bókun skipulagsráðs frá 5. apríl 2006, varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar.


111. fundur 2006
Kringlumýrarbraut, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Arkidea arkitekta ehf., dags. 20.03.06, að breytingu á deiliskipulagi við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar.
Vísað til skipulagsráðs.

50. fundur 2006
Kringlumýrarbraut, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Arkídea arkitekta ehf., dags. 20. mars 2006, að breytingu á deiliskipulagi við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.