Kjalarnes

Verknúmer : SN060261

59. fundur 2006
Kjalarnes, stutt verði við aukna þjónustu
Lagt fram bréf Reykjavíkurráðs ungmenna, dags. 15. júní 2006 þar sem ítrekuð er tillaga frá fundi borgarstjóra, borgarfulltrúa og fulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna frá 28. mars 2006, þar sem samþykkt var að vísa til skipulagsráðs tillögu um að stutt verði við aukna þjónustu á Kjalarnesi. Tillagan var lögð fram í skipulagsráði 5. apríl 2006.
Samþykkt að vísa erindinu til skoðunar í stýrihóp um rammaskipulag á Kjalarnesi.

50. fundur 2006
Kjalarnes, stutt verði við aukna þjónustu
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 29. mars 2006, vegna fundar borgarstjóra, borgarfulltrúa og fulltrúa Reykjavíkurráðs ungmenna 28. mars 2006, þar sem samþykkt var að vísa til skipulagsráðs tillögu um að stutt verði við aukna þjónustu á Kjalarnesi. Einnig lögð fram greinargerð.