Miðhús 30

Verknúmer : SN060241

54. fundur 2006
Miðhús 30, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram tillaga Ragnhildar Ingólfsdóttur, dags. 24. febrúar 2006, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 30 við Miðhús. Kynning stóð yfir frá 12. apríl til og með 10. maí 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

111. fundur 2006
Miðhús 30, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Ragnhildar Ingólfsdóttur, dags. 24.02.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 30 við Miðhús.
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum í Miðhúsum 32 og Baughúsum 30 og 42 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.