Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli

Verknúmer : SN060196

52. fundur 2006
Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram fram að nýju tillaga Landmótunar, dags. 14.03.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 24 við Kirkjuteig vegna gerfigrasvallar í stað núverandi malarvallar. Málið var í kynningu frá 22.03 til og með 19.04.06. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

Dagur B. Eggertsson tók sæti á fundinum kl. 9:16


109. fundur 2006
Kirkjuteigur 24, Laugarnesskóli, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Landmótunar, dags. 14.03.06, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 24 við Kirkjuteig vegna gerfigrasvallar í stað núverandi malarvallar.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hofteig 40, 46, 48 og 54.