Laugavegur 85

Verknúmer : SN060145

49. fundur 2006
Laugavegur 85, kæra, umsögn, úrskurður.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, vegna kæru Jóns Bárðarsonar á ákvörðun byggingarfulltrúa um að veita leyfi fyrir niðurrifi húss að Laugavegi 85 og bygginu fjögurra hæða húss með atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð og sex íbúðum á efri hæðum hússins.
Úrskurðarorð: Kröfu kæranda, um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúa í Reykjavík frá 29. nóvember 2006 um að veita leyfi fyrir niðurrifi húss að Laugavegi 85 í Reykjavík og byggingu fjögurra hæða húss með atvinnuhúsnæði á fyrstu hæð og sex íbúðum á efri hæð hússins, er hafnað


47. fundur 2006
Laugavegur 85, kæra, umsögn, úrskurður.
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 8. mars 2006, vegna kæru á byggingarleyfi vegna hússins að Laugavegi 85.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

46. fundur 2006
Laugavegur 85, kæra, umsögn, úrskurður.
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 22. febrúar 2006, ásamt kæru dags. 19. janúar 2006, þar sem kært er byggingarleyfi vegna hússins að Laugarvegi 85.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.