Lindargata 27 og 29

Verknúmer : SN060134

50. fundur 2006
Lindargata 27 og 29, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags og byggingarmála varðandi kæru á ákvörðun borgarráðs um að samþykkja deiliskipulag fyrir Skúlagötusvæði við Lindargötu og breytingu á því skipulagi sem skipulagsráð samþykkti varðandi lóðina að Lindargötu 27-29. Þá er kærð veiting byggingarleyfis fyrir átta hæða íbúðarhúsi á lóðinni nr. 27-29 sem byggingarfulltrúinn samþykkti.
Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


49. fundur 2006
Lindargata 27 og 29, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýsli, dags. 20. mars 2006, vegna kröfu um stöðvun framkvæmda vegna samþykkt byggingarfulltrúa á byggingarleyfi, dags. 22. mars 2005 á lóðinni nr. 27 við Lindargötu.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

46. fundur 2006
Lindargata 27 og 29, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram kæra íbúa að Lindargötu 25, dags. 21. febrúar 2006, á samþykkt deiliskipulags reits 1.152.4 þann 13. apríl 2004 og á samþykkt á breytingu sama deiliskipulags vegna lóða nr. 27 og 29 við Lindargötu þann 12. janúar 2005.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.