Logafold 138

Verknúmer : SN060133

49. fundur 2006
Logafold 138, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn VA arkitekta, dags. 23. febrúar 2006 ásamt uppdrætti, dags. 22. febrúar 2006, varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis vegna stækkunar byggingarreits lóðar nr. 138 við Logafold. Lagt fram bréf allra hagsmunaaðilum, dags. 15. mars 2006, þar sem ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

106. fundur 2006
Logafold 138, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn VA arkitekta, dags. 23.02.06 ásamt uppdrætti, dags. 22.02.06, varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis vegna stækkunar byggingarreits lóðar nr. 138 við Logafold.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Logafold 136 og 140.