Bakkastaðir 47

Verknúmer : SN060094

48. fundur 2006
Bakkastaðir 47, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Björgvins Snæbjörnssonar, dags. febrúar 2006, að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 47 við Bakkastaði. Málið var í kynningu frá 17. febrúar til 17. mars 2006. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

104. fundur 2006
Bakkastaðir 47, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Björgvins Snæbjörnssonar, dags. febrúar 2006, að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 47 við Bakkastaði.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bakkastöðum 45, 49, 55 og 57, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.