Reitur 1.154.3, Barónsreitur

Verknúmer : SN060034

53. fundur 2006
Reitur 1.154.3, Barónsreitur, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 8. maí 2006 vegna kæru til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna breytingar á deiliskipulagi fyrir Barónsreit 1.154.3, sem afgreiddar voru á fundi skipulagsráðs 19. október 2005.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

41. fundur 2006
Reitur 1.154.3, Barónsreitur, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 12. janúar 2006, ásamt kærum, dags. 20, 24 og 25 nóvember 2005, þar sem kærðar eru breytingar á deiliskipulagi fyrir Barónsreit 1.154.3, sem afgreiddar voru á fundi skipulagsráðs 19. október 2005.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.