Laufásvegur 17

Verknúmer : SN060006

54. fundur 2006
Laufásvegur 17, kæra, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 11. maí 2006 varðandi kæru 7 aðila á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 26.11.02 um veitingu leyfis til breytinga á nýtingu fasteignarinnar nr. 17 við Laufásveg.

Úrskurðarorð: Kröfu kærenda, um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 26. nóvember 2002, sem staðfest var í borgarstjórn Reykjavíkur hinn 5. desember s.á., um veitingu leyfis fyrir breytingum á ytra útliti fyrstu hæðar og breyttri notkun hennar úr atvinnuhúsnæði í íbúðir í húsinu nr. 17 við Laufásveg í Reykjavík, er hafnað.


40. fundur 2006
Laufásvegur 17, kæra, úrskurður
Lögð fram greinargerð lögfræði og stjórnsýslu, dags. 20.06.05, varðandi kæru 7 aðila á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 26.11.02 um veitingu leyfis til breytinga á nýtingu fasteignarinnar nr. 17 við Laufásveg.
Framlögð greinargerð samþykkt.