Vagnhöfði 29

Verknúmer : SN050777

39. fundur 2005
Vagnhöfði 29, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 16. desember 2005, vegna kæru á ákvörðun byggingafulltrúans í Reykjavík frá 3. maí 2005 um að samþykkja breytingu á byggingarleyfi er fól í sér stækkun og breytingu á áður samþykktri lager- og tengibyggingu á lóðinni að Vagnhöfða 29 í Reykjavík.
Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 3. maí 2005 um að samþykkja breytingu á byggingarleyfi fyrir mannvirkjum á lóðinni að Vagnhöfða 29 í Reykjavík.