Kvistaland 26

Verknúmer : SN050678

40. fundur 2006
Kvistaland 26, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga T.ark, dags. 7. nóvember 2005, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 26 við Kvistaland, vegna afmörkunar nýrrar lóðar þar sem heimilt verði að reisa hús fyrir fjarskiptabúnað. Einnig lagt fram bréf skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs, dags. 20. október 2005. Málið var í kynningu frá 29. nóvember til 28. desember 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

93. fundur 2005
Kvistaland 26, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga T.ark, dags. 7. nóvember 2005, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 26 við Kvistaland, vegna afmörkunar nýrrar lóðar þar sem heimilt verði að reisa hús fyrir fjarskiptabúnað. Einnig lagt fram bréf skrifstofustjóra Framkvæmdasviðs, dags. 20. október 2005.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hellulandi 20-24, Kvistlandi 23 og Haðalandi 21, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.