Laufásvegur 19

Verknúmer : SN050530

85. fundur 2007
Laufásvegur 19, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa, dags. 28. febrúar 2007, vegna kæru Byggís, dags. 20. desember 2005, á ákvörðun skipulagsráðs frá 23. nóvember 2005 um synjun á skráningu húshluta að Laufásvegi 19.
Umsögn byggingarfulltrúa samþykkt.

43. fundur 2006
Laufásvegur 19, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 19. janúar 2006, ásamt kæru Byggís, dags. 20. desember 2005, á ákvörðun skipulagsráðs frá 23. nóvember 2005 um synjun á skráningu húshluta að Laufásvegi 19.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.