Salthamrar 8

Verknúmer : SN050510

34. fundur 2005
Salthamrar 8, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Úti og inni sf, dags. 21.09.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 8 við Salthamra. Málið var í kynningu frá 28. september til 26. október. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

86. fundur 2005
Salthamrar 8, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Úti og inni sf, að breytingu á deiliskipulagi, dags. 21.09.05.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Salthömrum 4, 6, 10, 16,18 og Stakkhömrum 5, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.