Garðastræti 33

Verknúmer : SN050507

55. fundur 2006
Garðastræti 33, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 24. maí 2006 vegna kæru á ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 6. júlí 2005 um breytingu á deiliskipulagi vegna sendiráðslóðar að Garðastræti 33 í Reykjavík. Úrskurðarorð: Máli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


50. fundur 2006
Garðastræti 33, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 30. mars 2006, vegna kæru íbúa Túngötu 3 í Reykjavík, dags. 24. júlí 2005 á samþykkt skipulagsráðs frá 6. júlí 2005, um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 33 við Garðastræti í Reykjavík . Í kærunni er þess krafist að framangreind samþykkt skipulagsráðs verði felld úr gildi.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

25. fundur 2005
Garðastræti 33, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 24. ágúst 2005, ásamt kæru, dags. 24. júlí 2005, þar sem kærð er samþykkt skipulagsráðs frá 6. júlí s.l. um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 33 við Garðastræti í Reykjavík.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.