Köllunarklettsvegur 3 og 5, Héðinsgata 1, 2 og 3

Verknúmer : SN050494

70. fundur 2006
Köllunarklettsvegur 3 og 5, Héðinsgata 1, 2 og 3, (fsp) Kassagerðarreitur
Lögð fram fyrirspurn GP arkitekta, dags. 18. október 2006 ásamt tillögu að uppbyggingu, dags. ágúst 2006. Einnig lögð fram greinargerð/drög að forsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2005 og bréf hafnarstjórnar Faxaflóahafna, dags. 16. janúar 2006.
Tillögunni er vísað til umsagnar stjórnar Faxaflóahafna og Framkvæmdaráðs vegna umferðarmála.

30. fundur 2005
Köllunarklettsvegur 3 og 5, Héðinsgata 1, 2 og 3, (fsp) Kassagerðarreitur
Lögð fram greinargerð/drög að forsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2005.

Árni Þór Sigurðsson vék af fundi kl. 10:10 og tók Ágústa Kristófersdóttir sæti á fundinum í hans stað.
Frestað. Greinargerðinni vísað til umsagnar stjórnar Faxaflóahafna.

87. fundur 2005
Köllunarklettsvegur 3 og 5, Héðinsgata 1, 2 og 3, (fsp) Kassagerðarreitur
Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2005.
Vísað til skipulagsráðs.