Skúlagata 51

Verknúmer : SN050469

37. fundur 2005
Skúlagata 51, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 12.10.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 51 við Skúlagötu. Málið var í kynningu frá 26. október til 23. nóvember. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 12. gr. samþykktar fyrir skipulagsráð.

90. fundur 2005
Skúlagata 51, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 12.10.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 51 við Skúlagötu.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skúlagötu 53-55 og Borgartúni 1.

80. fundur 2005
Skúlagata 51, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, dags. 4.08.05, ásamt uppdr., dags. 16.06.05, vegna breytingar á deiliskipulagi lóðar nr. 51 við Skúlagötu.
Ekki er gerð athugasemd við að grenndarkynna framlagða umsókn þegar deiliskipulagsuppdrættir hafa verið lagfærðir þannig að þeir séu tækir til grenndarkynningar.