Vesturgata 3

Verknúmer : SN050445

39. fundur 2005
Vesturgata 3, kæra
Lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu, dags. 8. desember 2005, varðandi kæru Minjaverndar, dags. 16. nóvember 2005, á byggingarleyfi vegna Vesturgötu 3 útgefið 23. september 2005.
Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt.

37. fundur 2005
Vesturgata 3, kæra
Lögð fram kæra Minjaverndar, dags. 16. nóvember 2005, á byggingarleyfi vegna Vesturgötu 3 útgefið 23. september 2005 og þess krafist að allar framkvæmdir er grundvallast á viðkomandi leyfi verði stöðvaðar þegar.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.

23. fundur 2005
Vesturgata 3, kæra
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 20. júlí 2005, ásamt kæru, dags. 14. júlí 2005, þar sem kærð er samþykkt skipulagsráðs frá 4. maí s.l. um breytt deiliskipulag að Vesturgötu 3 og Aðalstræti 4.
Vísað til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu.