Bergstaðastræti 33B

Verknúmer : SN050436

79. fundur 2007
Bergstaðastræti 33B, kæra, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 18. desember 2006 vegna kæru á ákvörðun skipulagsráðs frá 1. júní 2005, um að hafna umsókn um hækkun þaks, byggingu kvista og svala og að taka í notkun rishæð í húsinu nr. 33b við Bergstaðastræti. Úrskurðarorð: Máli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.


22. fundur 2005
Bergstaðastræti 33B, kæra, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 14. júlí 2005, ásamt kæru, dags. 1. júlí 2005, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsráðs frá 1. júní 2005, um að synja umsókn kæranda um leyfi til breytinga hússins að Bergstaðastræti 33B.
Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.