Örfirisey

Verknúmer : SN050274

82. fundur 2007
Örfirisey, heimild til landfyllingar
Lagt fram bréf Faxaflóahafna sf, dags. 31. janúar 2007, ásamt bréfi Þyrpingar h.f., dags. 17. janúar 2007, varðandi heimild til landfyllingar við Örfirisey.
Ráðið er jákvætt gagnvart framtíðar íbúðabyggð í Örfirisey en bendir á að breytingar eins og þær sem fram koma í framlögðu erindi eru háðar endurskoðun á Aðalskipulagi Reykjavíkur og mati á umhverfisáhrifum. Í ljósi þess er ekki tímabært að taka formlega afstöðu til erindisins og er því þannig vísað til frekari skoðunar í stýrihóp vegna endurskoðunar á aðalskipulagi.