Sóltún, Ármannsreitur

Verknúmer : SN050267

82. fundur 2007
Sóltún, Ármannsreitur, kæra, umsögn
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 23. janúar 2007, vegna kæru Húsfélagsins að Sóltúni 5 á samþykkt skipulagsráðs, dags. 26. janúar 2005, á tillögu að deiliskipulagsbreytingu fyrir Sóltún - Ármannsreit.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

15. fundur 2005
Sóltún, Ármannsreitur, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 11. maí 2005, ásamt kæru, dags. 22. febrúar 2005, þar sem kært er deiliskipulag fyrir Sóltún-Ármannsreit, sem samþykkt var á fundi skipulagsráðs 26. janúar s.l. Borgarráðs samþykkti afgreiðslu skipulagsráðs á fundi þann 3. febrúar 2005.