Súðarvogur 6

Verknúmer : SN050161

10. fundur 2005
Súðarvogur 6, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 16. mars 2005, varðandi kæru eiganda bakhúss að Súðarvogi 6, Reykjavík á synjun skipulags- og byggingarnefndar frá 13. október 2004 um að aflétta niðurrifskvöð sem á húsinu hvílir.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 13. október 2004, sem staðfest var af borgarstjórn Reykjavíkur hinn 19. október s.á., að synja afléttingu niðurrifskvaðar sem hvílir á húsi kæranda að Súðarvogi 6, Reykjavík.