Kirkjuteigur 25

Verknúmer : SN050156

45. fundur 2006
Kirkjuteigur 25, kæra
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 9. febrúar 2006, vegna kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 7. desember 2004 um að hafna kröfu sameigenda að fasteigninni Kirkjuteigi 25 um að gróðurskáli á nefndri lóð verði fjarlægður. Úrskurðarorð: Kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 7. desember 2004, um að synja kröfu um niðurrif gróðurskála á lóðinni að Kirkjuteigi 25, er hafnað.


42. fundur 2006
Kirkjuteigur 25, kæra
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 17.janúar 2006, vegna kæru á synjun byggingarfulltrúa frá 7. desember 2004 á erindi um að fjarlægja gróðurskála af lóðinni nr. 25 við Kirkjuteig.
Umsögn lögfræði- og stjórnsýslu samþykkt.

10. fundur 2005
Kirkjuteigur 25, kæra
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 11. mars 2005, ásamt afriti af kæru, dags. 9. janúar 2005, þar sem kærð er synjun á erindi um að fjarlægja gróðurskála af lóðinni nr. 25 við Kirkjuteig.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.