Brautarholt 24

Verknúmer : SN050118

8. fundur 2005
Brautarholt 24, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Kristjáns Ásgeirssonar arkitekts, dags. 20. febrúar 2005, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 24 við Brautarholt. Einnig lagt fram samþykki eigenda þriðju hæðar að Brautarholti 24, dags. 21. janúar 2005.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa, dags. 9. febrúar 2005. Einnig lagt fram samþykki þeirra sem grenndarkynnt var fyrir áritað á uppdrátt, dags. 04.03.05.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

57. fundur 2005
Brautarholt 24, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Kristjáns Ásgeirssonar arkitekts, dags. 20. febrúar 2005, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 24 við Brautarholt. Einnig lagt fram samþykki eigenda þriðju hæðar að Brautarholti 24, dags. 21. janúar 2005.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa, dags. 9. febrúar 2005.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Brautarholti 26.