Þorláksgeisli 9

Verknúmer : SN050102

75. fundur 2006
Þorláksgeisli 9, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 16. nóvember 2006 vegna kæru á breytingu á deiliskipulagi fyrir Þorláksgeisla 9. Úrskurðarorð: Samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur frá 7. desember 2004 um breytt deiliskipulag vegna lóðarinnar nr. 9 við Þorláksgeisla er felld úr gildi.


56. fundur 2006
Þorláksgeisli 9, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði- og stjórnsýslu, dags. 15.06.06, vegna kæru á samþykkt borgarráðs um að heimila endurupptöku á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Þorláksgeisla 9.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

7. fundur 2005
Þorláksgeisli 9, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 16. febrúar 2005, ásamt afriti af kæru, dags. 12. janúar 2005, þar sem kærð er samþykkt borgarráðs um að heimila endurupptöku á tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Þorláksgeisla 9 frá 7. desember 2004.
Málinu vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.