Suðurlandsbraut 14

Verknúmer : SN050084

65. fundur 2005
Suðurlandsbraut 14, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Kristins Ragnarssonar arkitekts, dags. 22.02.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 14 við Suðurlandsbraut. Málið var í auglýsingu frá 11. mars til 22. apríl 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til 2. gr. viðauka 2.3 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

8. fundur 2005
Suðurlandsbraut 14, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 3. mars 2005 á bókun skipulagsráðs 23. f.m. um aulýsingu breytingar á deiliskipulagi lóðar nr. 14 við Suðurlandsbraut.


7. fundur 2005
Suðurlandsbraut 14, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar arkitekts, dags. 22.02.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 14 við Suðurlandsbraut.
Samþykkt að auglýsa fram lagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


56. fundur 2005
Suðurlandsbraut 14, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Kristins Ragnarssonar arkitekts, dags. 11.02.05, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 14 við Suðurlandsbraut.
Vísað til Skipulagsráðs.