Vesturhöfnin

Verknúmer : SN050068

11. fundur 2005
Vesturhöfnin, breyting á aðalskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 31. mars 2005 á bókun skipulagsráðs frá 16. s.m., varðandi auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi vegna Vesturhafnar.


9. fundur 2005
Vesturhöfnin, breyting á aðalskipulagi
Lagt fram bréf Faxaflóahafna sf, dags. 2. febrúar 2005, ásamt minnisblaði, dags. 29.11.04, varðandi breytingu á landnotkun í Vesturhöfn. Einnig lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á aðalskipulagi dags. 15. mars 2005.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.