Bitruháls 2

Verknúmer : SN050023

62. fundur 2005
Bitruháls 2, Bæjarháls 1
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Arkís ehf, dags. 10. janúar 2005 ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóð Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 og lóð Osta- og Smjörsölunnar, Bitruhálsi 2. Auglýsingin stóð yfir frá 11. febrúar til 29. mars 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

6. fundur 2005
Bitruháls 2, Bæjarháls 1
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 3. febrúar 2005 á bókun skipulagsráðs frá 19. f.m., varðandi auglýsingu á breyttu deiliskipulagi á lóð Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 og lóð Osta- og smjörsölunnar, Bitruhálsi 2.


2. fundur 2005
Bitruháls 2, Bæjarháls 1
Lögð fram umsókn Arkís ehf, dags. 10. janúar 2005 ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóð Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 og lóð Osta- og Smjörsölunnar, Bitruhálsi 2.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.


51. fundur 2005
Bitruháls 2, Bæjarháls 1
Lögð fram umsókn Arkís ehf, dags. 10. janúar 2005 ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóð Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 og lóð Osta- og Smjörsölunnar, Bitruhálsi 2.
Vísað til skipulagsráðs.