Klettagarðar 8-10

Verknúmer : SN050020

8. fundur 2005
Klettagarðar 8-10, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf Reykjavíkurhafnar, dags. 10. janúar 2005, varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 8-10 við Klettagarða, samkv. uppdr. Arkitekta Gunnars og Reynis sf, dags. 05.01.05. Málið var í kynningu frá 26. janúar til 23. febrúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

52. fundur 2005
Klettagarðar 8-10, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Reykjavíkurhafnar, dags. 10. janúar 2005, varðandi breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 8-10 við Klettagarða, samkv. uppdr. Arkitekta Gunnars og Reynis sf, dags. 05.01.05.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Klettagörðum 6.