Pósthússtræti 2

Verknúmer : SN050004

1. fundur 2005
Pósthússtræti 2, Tryggvagata 28, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 30. desember 2004, varðandi kæru um breytt deiliskipulag lóðanna nr. 2 við Pósthússtræti og nr. 28 við Tryggvagötu og ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 30. nóvember 2004 um að veita byggingarleyfi til breyttrar notkunar sömu fasteigna.
Úrskurðarorð:
Hafnað er kröfu byggingarleyfishafa um frávísun kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda.
Hafnað er kröfu kærenda um að framkvæmdir samkvæmt hinu umdeilda deiliskipulagi og hinu umdeilda byggingarleyfi verði stöðvaðar meðan mál þetta er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni.