Hólavað 45-61

Verknúmer : SN040705

8. fundur 2005
Hólavað 45-61, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, dags. 21.12.04, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 45-61 við Hólavað ásamt uppdr. Vektors, dags. 17.01.05. Málið var í kynningu frá 26. janúar til 23. febrúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

52. fundur 2005
Hólavað 45-61, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, dags. 21.12.04, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 45-61 við Hólavað ásamt uppdr. Vektors, dags. 17.01.05.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Hólavaði 63 - 71 ásamt Hólmvaði 54 - 68.

51. fundur 2005
Hólavað 45-61, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Sparisjóðs Hafnarfjarðar, dags. 21.12.04, varðandi breytingu á skilmálum vegna lóðanna nr. 45-61 við Hólavað.
Ekki gerð athugasemd við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað sem síðan verður grenndarkynnt.