Lækjargata 2a

Verknúmer : SN040687

67. fundur 2006
Lækjargata 2a, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 26. september 2006, varðandi kæru vegna samþykktar byggingarfulltrúa dags. 9. nóvember 2004 á umsókn um leyfi til að koma fyrir veitingastöðum á þriðju og fjórðu hæð hússins nr. 2A við Lækjargötu.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

185. fundur 2004
Lækjargata 2a, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarnefndar frá 14. desember 2004, varðandi kæru stjórnar húsfélagsins Lækjargötu 4, á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. nóvember 2004 um að veita leyfi til að koma fyrir veitingastöðum á þriðju og fjórðu hæð hússins nr. 2A við Lækjargötu.
Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um að framkvæmdir samkvæmt hinu umdeilda byggingarleyfi verði stöðvaðar meðan mál þetta er til meðferðar fyrir úrskurðarnefndinni.