Spöngin 1

Verknúmer : SN040671

1. fundur 2005
Spöngin 1, stækkun lóðar, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Hrafnkels Thorlacius arkitekts, dags. 03.12.04, varðandi stækkun lóðarinnar nr. 1 við Spöngina og fjölgunar á bílastæðum. Einnig lagt fram bréf fulltrúa skrifstofustjóra borgarverkfræðings, dags. 21.12.04 og umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 08.12.04.
Jákvætt að umsækjandi láti á eigin kostnað vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við fyrirspurn sem grenndarkynnt verður þegar hún berst. Sá fyrirvari er að samkomulag náist um gatnagerðargjöld og umsækjandi beri kostnað vegna breytinga á borgarlandi s.s. færslu stíga.

50. fundur 2005
Spöngin 1, stækkun lóðar, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Hrafnkels Thorlacius arkitekts, dags. 03.12.04, varðandi stækkun lóðarinnar nr. 1 við Spöngina og fjölgunar á bílastæðum. Einnig lagt fram bréf fulltrúa skrifstofustjóra borgarverkfræðings, dags. 21.12.04.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.

48. fundur 2004
Spöngin 1, stækkun lóðar, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Hrafnkels Thorlacius arkitekts, dags. 03.12.04, varðandi stækkun lóðarinnar nr. 1 við Spöngina og fjölgunar á bílastæðum.
Frestað. Vísað til umsagnar skrifstofustjóra borgarverkfræðings og óskað eftir umsögn um hvort lóðaskilmálar standi erindinu í vegi.