Hádegismóar

Verknúmer : SN040667

1. fundur 2005
Hádegismóar, breyting á aðalskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. desember á bókun skipulags- og byggingarnefndar frá 8. s.m., varðandi auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi vegna íþróttasvæðis við Rauðavatn.


183. fundur 2004
Hádegismóar, breyting á aðalskipulagi
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa, dags. 4.11.04, að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna íþróttasvæðis við Rauðavatn.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks óskuðu bókað:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks samþykkja að senda tillöguna í auglýsingu með öllum hefðbundnum fyrirvörum um endanlega afstöðu.