Laugavegur 18B

Verknúmer : SN040538

52. fundur 2005
Laugavegur 18B, og 20A, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur arkitekts, dags. 14.10.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum 18B og 20A við Laugaveg, samkv. uppdr. dags. 14. september 2004, breytt 30. nóvember 2004. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18.11.04. Málið var í kynningu frá 22. desember til 19. janúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Vísað til skipulagsráðs.

3. fundur 2005
Laugavegur 18B, og 20A, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga Ragnhildar Ingólfsdóttur arkitekts, dags. 14.10.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum 18B og 20A við Laugaveg, samkv. uppdr. dags. 14. september 2004, breytt 30. nóvember 2004. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18.11.04. Málið var í kynningu frá 22. desember til 19. janúar 2005. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

49. fundur 2004
Laugavegur 18B, og 20A, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur arkitekts, dags. 14.10.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum 18B og 20A við Laugaveg, samkv. uppdr. dags. 14. september 2004, breytt 30. nóvember 2004. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18.11.04.
Samþykkt að grenndarkynna breytinguna fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 18, 19, 20B, 21, Vegmótastíg 9, Grettisgötu 3, 3A og 5 og Klapparstíg 38.

45. fundur 2004
Laugavegur 18B, og 20A, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur arkitekts, dags. 14.10.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum 18B og 20A við Laugaveg, samkv. uppdr. dags. 14. september 2004. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18.11.04.
Jákvætt með vísan til umsagnar. Grenndarkynna þarf breytingu á deiliskipulagi þegar hún berst.

40. fundur 2004
Laugavegur 18B, og 20A, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Ragnhildar Ingólfsdóttur arkitekts, dags. 14.10.04, að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum 18B og 20A við Laugaveg, samkv. uppdr. dags. 14. september 2004.
Frestað. Vísað til umsagnar hverfisstjóra.