Vesturbæjarsundlaug

Verknúmer : SN040366

67. fundur 2006
Vesturbæjarsundlaug, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram niðurstaða úrskurðarnefndar skipulags- og bygggingarmála vegna kæru Hjalta Hjaltasonar á samþykkt um deiliskipulag Vesturbæjarsundlaugar.
Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu samþykktar skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 21. apríl 2004, sem staðfest var á fundi borgarráðs hinn 27. apríl 2004, um deiliskipulag Vesturbæjarsundlaugar.


65. fundur 2006
Vesturbæjarsundlaug, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 11. september 2006, vegna kæru Hjalta Hjaltasonar á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar frá 21. apríl 2004 um breytingu á deiliskipulagi Sundlaugar Vesturbæjar.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

168. fundur 2004
Vesturbæjarsundlaug, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 16.06.04, ásamt kæru á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar frá 21.04.04 um breytingu á deiliskipulagi Sundlaugar Vesturbæjar.
Vísað til umsagnar lögfræði- og stjórnsýslu.