Skildinganes

Verknúmer : SN040365

74. fundur 2006
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 14. nóvember 2006, varðandi kæru vegna breytts deiliskipulag Skildinganess. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 18. febrúar 2004 um breytt deiliskipulag Skildinganess, sem staðfest var í borgarráði hinn 24. febrúar 2004.


64. fundur 2006
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 26. ágúst 2006, vegna kæru á samþykkt skipulagsráð, dags. 16. febrúar 2006, á breytingu á deiliskipulagi fyrir Skildinganes, reits 1.671, 1.674, 1.675 og 1.676.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

166. fundur 2004
Skildinganes, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 29. júní 2004 ásamt ljósriti af kæru, dags. 24. júní 2004, þar sem kærð er samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 16. febrúar og borgarráðs frá 24. febrúar 2004, um breytingu á deiliskipulagi Skildinganess.
Vísað til lögfræði og stjórnsýslu.